Glýserín endaþarmsstílar

Til meðhöndlunar á hægðatregðu

Glýserín hægðalosandi endaþarmsstílar

Glýserín endaþarmsstílar hafa örvandi og smyrjandi verkun í endaþarmi og framkalla mjög þægilega tæmingu af þykknuðum eða hörðum hægðum í þörmum. 

Innihald

Glýserín (min. 80%), natríum sterat, vatn.

Notkun

Við tilfallandi hægðatregðu hjá börnum og fullorðnum
Þjálfun á hefðbundnu hægðaviðbragði við hægðatregðu

Skömmtun
Glýserín endaþarmsstílar 2,2 g: Fullorðnir og börn frá 12 ára aldri: 1 endaþarmsstíll daglega.
Glýserín endaþarmsstílar 1,0 g: Börn frá 1 árs aldri: 1 endaþarmsstíll daglega.Notkun Glýserín endaþarmsstíla fyrir börn yngri en 1 árs skal vera í samráði við lækni.

Notkunarleiðbeiningar
Opnið filmuna fyrir ofan oddmjóa enda endaþarmsstílsins og fjarlægið umbúðirnar. Setjið stílinn upp í endaþarminn, oddmjóa endann fyrst. Verkar innan 30 mínútna frá notkun.
Hver stakur glýserín endaþarmsstíll er ætlaður til notkunar í eitt stakt skipti.
Endurnotkun er hvorki möguleg né ákjósanleg.

Aukaverkanir

Allar alvarlegar aukaverkanir sem verða í tengslum við notkun þessarar vöru skal tilkynna til framleiðanda eða viðeigandi yfirvalda, hér Lyfjastofnun. Einnig er hægt að tilkynna þær beint til dreifingaraðila.

Varnarorð

Ekki skal nota þessa endaþarmsstíla ef til staðar er bráður kviðverkur eða verkur af óþekktum uppruna.
Ekki skal nota vöruna ef þekkt ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefni glýserín endaþarmsstíla er til staðar eða ef áætlaður notandi hefur áður fyrr fengið bólgu eða sprungur á endaþarmssvæði eða ef til staðar er gyllinæð sem blæðir úr.
Glýserín endaþarmsstílar 2,2 g eru hentugir til notkunar fyrir þungaðar konur og konur með barn á brjósti.

Fyrir samhliða notkun annarra vara/lyfja í endaþarm skal ráðfæra sig við lyfjafræðing.