pharmaGRÓ ehf.

pharmaGRÓ er umboðsfyrirtæki fyrir lyf frá alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum og hefur það að markmiði að fjölga lyfjum á markaði á Íslandi til að minnka líkur á algerum skorti á einstökum lyfjum í landinu.

Vörur

PROIBS skammtabréf

Til meðhöndlunar á einkennum IBS (Iðraólga)

PROIBS® er vottuð lækningavara til meðhöndlunar á einkennum iðraólgu (Irritable Bowel Syndrome, IBS), eins og magaverk, uppþembu og breytilegum hægðum (niðurgangur og/eða hægðatregða). 

Nánar um vöruna

Glýserín endaþarmsstílar

Til meðhöndlunar á hægðatregðu

Glýserín hægðalosandi endaþarmsstílar

Glýserín endaþarmsstílar hafa örvandi og smyrjandi verkun í endaþarmi og framkalla mjög þægilega tæmingu af þykknuðum eða hörðum hægðum í þörmum. 

Nánar um vöruna

Um okkur

Fyrirtækið pharmaGRÓ er nýtt íslenskt lyfjafyrirtæki stofnað í mars 2022. Fyrirtækið er stofnað af Ómari Kristjánssyni, Regínu Hallgrímsdóttur og Georg Heiðari Ómarssyni og eru Regína og Georg Heiðar fyrstu starfsmenn fyrirtækisins. pharmaGRÓ hefur verið til húsa að Grensásvegi 22 í Reykjavík frá stofnun fyrirtækisins.

pharmaGRÓ setti sína fyrstu vöru á markað í apríl 2023, lækningavöruna PROIBS gegn einkennum IBS og svo Glýserín hægðalosandi endaþarmsstíla í júlí sama ár.