PROIBS skammtabréf

Til meðhöndlunar á einkennum IBS (Iðraólga)

PROIBS® er vottuð lækningavara til meðhöndlunar á einkennum iðraólgu (Irritable Bowel Syndrome, IBS), eins og magaverk, uppþembu og breytilegum hægðum (niðurgangur og/eða hægðatregða). 

Innihald

Hver skammtapoki af PROIBS® inniheldur 250 mg af AVH200® extrakti sem á uppruna
sinn í Aloe barbadensis Mill. sem virkt efni.

Önnur innihaldsefni: Frúktósi, inulin, sítrónusýra, natríum bíkarbónat, askorbínsýra,
silica, þrí-kalsíumfosfat, magnesíumsalt af fitusýrum, sítrónubragðefni, B2-vítamín
(riboflavin 5-fosfat).
PROIBS® inniheldur ekki glúten, laktósa, egg, hnetur eða soja.

Notkun

Hella skal innihaldi eins skammtapoka í glas og fylla með vatni. Taka skal PROIBS® 1 – 2 sinnum á dag.

Þessi vara er hentug til langtíma notkunar. Hinsvegar; ef hún er notuð í langan tíma eða ef einkenni versna er mælt með að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.

Aukaverkanir

Engar milliverkanir við lyf eru þekktar. Mælt er með að ráðfæra sig við lækni ef einnig er verið að taka lyfseðilsskyld lyf.

Engar aukaverkanir eru þekktar fyrir þessa vöru. Láta skal lækni eða lyfjafræðing vita ef einstaklingar upplifa samt sem áður aukaverkanir. Einnig er hægt að tilkynna þær beint til viðeigandi yfirvalda, hér Lyfjastofnun. Einnig er hægt að tilkynna þær beint til dreifingaraðila.

Varnarorð

Ekki skal nota PROIBS® ef til staðar er ofurviðkvæmni eða ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefni vörunnar. PROIBS® er vara sem gert er ráð fyrir að geti verið notuð til lengri tíma. Ef einkennin breytast eða versna við langtíma notkun vörunnar er mælt með að ráðfæra sig við lækni. Þessi vara er ekki ráðlögð fyrir börn yngri en 13 ára. Einstaklingum með sykursýki er ráðlagt að ráðfæra sig við sinn lækni áður en varan er notuð.
Þunguðum konum og konum með barn á brjósti er ráðlagt að ráðfæra sig við lækni áður en PROIBS® er notað. Ráðlagt er að ráðfæra sig við lækni ef nota á þessa vöru ásamt lyfjum.